13.02.2014

Greiðslur úr lífeyrissparnaði - hvað ber að hafa í huga?

Fræðslufundur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar verður haldinn þriðjudaginn 25. febrúar kl. 17:30 í Arion banka, Borgartúni 19. 

Á fundinum verður farið yfir m.a. reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, skattalega meðferð lífeyrissparnaðar og samspil útgreiðslna úr lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun.

Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund og verður boðið upp á léttar kaffiveitingar. Fyrirlesari verður Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins.

Allir velkomnir.

Skráning á fundinn

Til baka