Launagreiðendur

Skilvirkasta og þægilegasta leiðin fyrir launagreiðendur, sem hafa ekki aðgang að launakerfi, að senda inn skilagreinar er í gegnum Mínar síður – launagreiðendavef.

Opna launagreiðendavef

Launagreiðendur greiða skyldulífeyrissparnað mánaðarlega í lífeyrissjóð fyrir alla starfandi einstaklinga á aldrinum 16-70 ára og viðbótarlífeyrissparnað fyrir þá sem það vilja.

Skilagreinum má skila með ýmsum hætti, en mælt er með rafrænni skráningu skilagreina til að auka skilvirkni og minnka villuhættu.

Nánari upplýsingar um skilagreina- og greiðslumöguleika má finna hér fyrir neðan.

Greiðsluupplýsingar

  • Notandanafn og lykilorð: Launagreiðandi velur sjálfur í launakerfi
  • Kennitala: 660472-0299
  • Reikningsnúmer: 329-26-656002
  • Lífeyrissjóðsnúmer: 540
  • IBAN: IS62 0329 2600 656002 6604 7202 99
  • SWIFT: ESJAISRE
  • Gjalddagi: 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
  • Eindagi: Síðasti virki dagur næsta mánaðar eftir launatímabil

Launagreiðendaþjónusta

Tímabundið er móttaka í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 lokuð, en lífeyrisráðgjafar geta leyst úr flestum fyrirspurnum í síma 444 6500 eða tölvupósti á netfanginu launagreidendur@arionbanki.is

Launagreiðendavefur

Býður m.a. upp á nýskráningu skilagreina, afritun eldri skilagreina og innsendingu textaskráa.

Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda. Auk þess geta allir launagreiðendur sótt launagreiðendayfirlit og fengið yfirsýn yfir heildarstöðu.

Ef annar en launagreiðandi sér um iðgjaldaskil er hægt að veita þeim aðila umboð, sjá nánar hér.

Launakerfi

Krafa myndast í netbanka launagreiðanda ef þess er óskað, annars er greiðsla millifærð inn á reikning sjóðsins.

Launagreiðandi velur sér sjálfur notendanafn og lykilorð.

Slóðin fyrir XML gögn er: https://www.arionbanki.is/rafskilxml/sendpaymentinfo.aspx

Nánar um rafræn skil í gegnum launakerfi inn á skilagrein.is.

Fastar greiðslur

Skilagreinar eru óþarfar þar sem um fastar mánaðarlegar greiðslur er að ræða.

Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda.

Upplýsa þarf lífeyrissjóðinn um breytingar á launum/reiknuðu endurgjaldi.

RSK og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Á hverju hausti sendir RSK frá sér lista yfir kröfur til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda.

Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur ekki staðið skil á neinum skylduiðgjöldum til lífeyrissjóðs fyrir launþega sína síðasta iðgjaldaár.

Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda öðlast forræði yfir kröfunni en hægt er að óska eftir að Lífeyrissjóður Rangæinga yfirtaki hana.

Frestur til að óska eftir yfirtöku er almennt 1 mánuður frá fyrsta bréfi.

RSK og Lífeyrissjóður Rangæinga

Á hverju hausti sendir RSK frá sér lista yfir kröfur til Lífeyrissjóðs Rangæinga.

Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur staðið skil á hluta skylduiðgjalda til Lífeyrissjóðs Rangæinga fyrir launþega sína fyrir síðasta iðgjaldaár.

Lífeyrissjóður Rangæinga öðlast forræði yfir kröfunni.