Opnað hefur verið fyrir umsóknir um ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar inn á lán á leidretting.is
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Sótt er um á vef ríkisskattstjóra leidretting.is.
Til að þú eigir möguleika á hámarksnýtingu skattfrelsisins sem í boði er gætirðu þurft að:
- greiða í viðbótarlífeyrissparnað fyrir tímabilið júlí 2014 til og með júní 2017
- hækka framlag þitt í 4% ef þarf *
- sækja um úrræðið á vefsvæði ríkisskattstjóra leidretting.is.
* Ef mánaðartekjur eru 694.444 kr. hjá einstaklingi eða 1.041.667 kr. hjá hjónum eða aðilum sem uppfylla skilyrði til samsköttunar, eða hærri, nýtist skattfrelsið að fullu m.v. 4% framlag launþega og 2% framlag launagreiðanda. Afgangurinn, ef um ræðir, hækkar inneign þína í viðbótarlífeyrissparnaði.
Nánari upplýsingar á arionbanki.is/leidrettingin.
Til baka