09.05.2016

Ársfundur 2016

Stjórn Lífeyrissjóðs Rangæinga boðar til ársfundar sjóðsins miðvikudaginn 18. maí nk. í Verkalýðshúsinu á Hellu, fundarsal á jarðhæð, kl. 20.00.

Dagskrá samkvæmt samþykktum sjóðsins.

  1. Skýrsla stjórnar.
  2. Kynning ársreiknings.
  3. Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt.
  4. Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins.
  5. Stjórnarkjör, samkvæmt grein 4.1.
  6. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins, þegar slíkar tillögur liggja fyrir.
  7. Laun stjórnarmanna.
  8. Kjör endurskoðanda.
  9. Önnur mál.

Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.

Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt.

 

Til baka