14.06.2017
Aukafulltrúafundur 2017
Stjórn Lífeyrissjóðs Rangæinga boðar til aukafulltrúafundar sjóðsins mánudaginn 26. júní nk. í Verkalýðshúsinu á Hellu, fundarsal á jarðhæð, kl. 20.00.
Dagskrá:
- Breyting á samþykktum Lífeyrissjóðs Rangæinga
- Önnur mál
Tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins hafa verið sendar til aðildarfélaga og liggja sömuleiðis fyrir, til kynningar, á skrifstofu sjóðsins ásamt því að vera aðgengilegar hér.
Sjóðsfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt.
Til baka