Sjóðfélagayfirlit
Yfirlit sjóðfélaga eru að berast í hús þessa dagana. Yfirlitin eru með hreyfingum síðustu átján mánaða. Við viljum vekja athygli á að jafnframt er hægt að nálgast yfirlitin á mínum síðum á lifrang.is.
Mikilvægt er að athuga hvort iðgjaldagreiðslur á launaseðlum hafi skilað sér til lífeyrissjóðsins. Vanti iðgjalda hreyfingar, hafðu þá endilega samband við skrifstofu sjóðsins í síma 487 5002 eða netfangið lifrang@lifrang.is eða Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is.
Einnig er sjóðfélögum bent á að hægt er að afþakka að fá heimsend yfirlit í netbanka Arion banka.
Til baka