Ársfundur 2019
Stjórn Lífeyrissjóðs Rangæinga boðar til ársfundar sjóðsins þriðjudaginn 14. maí nk. Fundurinn verður haldinn í litla salnum í Hvoli, Pálsstofu, á Hvolsvelli, kl. 20.00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum sjóðsins.
- Skýrsla stjórnar.
- Kynning ársreiknings.
- Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt.
- Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins.
- Stjórnarkjör, samkvæmt grein 4.1.
- Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins, þegar slíkar tillögur liggja fyrir.
- Laun stjórnarmanna.
- Kjör endurskoðanda.
- Önnur mál. Tillögur til ályktunar, sem taka á fyrir á ársfundi, þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund.
Tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins liggja frammi á skrifstofu sjóðsins og eru að auki aðgengilegar hér fyrir neðan. Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétt.
Meginniðurstöður ársreiknings Lífeyrissjóðs Rangæinga 2018
Tillögur að samþykktarbreytingum Lífeyrissjóðs Rangæinga 2019
Stjórnin
Til baka