Skattlagning lífeyrisgreiðslna
Skylt er að greiða tekjuskatt af lífeyrisgreiðslum eins og öðrum tekjum. Gagnlegt er fyrir sjóðfélaga að þeir séu upplýstir um skattþrepin sem nú eru þrjú svo tryggja megi rétta skattlagningu og forðast skattskuld við álagningu næsta ár. Sjóðfélögum er ráðlagt að upplýsa sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattlagning lífeyrisgreiðsla skuli hefjast þegar sótt er um útgreiðslu eða ef breytingar eiga sér stað. Persónuafsláttur og þrepamörk hafa nú hækkað um 10,7% á milli ára en skattprósentur haldast óbreyttar.
Staðgreiðsluhlutfallið vegna ársins 2023
- Í skattþrepi 1 er 31,45% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur að 409.986 kr.
- Í skattþrepi 2 er 37,95% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur á bilinu 409.987 kr. – 1.151.012 kr.
- Í skattþrepi 3 er 46,25% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur yfir 1.151.012 kr.
Persónuafsláttur 2023
Vilji sjóðfélagi nýta persónuafslátt ber honum að upplýsa sjóðinn um það. Fullur persónuafsláttur er 59.665 kr. á mánuði vegna ársins 2023.
Skattleysismörk 2023
Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna eru 189.714 kr. á mánuði miðað við 100% nýtingu persónuafsláttar.
Til baka