31.03.2023

Rafræn yfirlit og auknar fjárfestingarheimildir erlendis

Nýlega samþykkti Alþingi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem varða upplýsingagjöf til sjóðfélaga og fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna.

Yfirlit og upplýsingagjöf

Lífeyrissjóðum er nú heimilt að birta yfirlit og upplýsingar rafrænt.

Lífeyrissjóður Rangæinga hefur fram til þessa sent yfirlit til sjóðfélaga á pappírsformi tvisvar á ári en upplýsingarnar hafa einnig verið aðgengilegar á mínum síðum sjóðsins.

Í kjölfar breytinga lífeyrissjóðslaganna munu yfirlit hér eftir eingöngu verða birt á rafrænan hátt, þar sem rafrænnar auðkenningar er krafist. Á mínum síðum sjóðsins geta sjóðfélagar óskað eftir því að fá yfirlitin send á pappírsformi, þeim að kostnaðarlausu.

Nýir sjóðfélagar

Nýtt ákvæði bætist nú við lögin sem felur í sér að lífeyrissjóðir eigi að veita nýjum sjóðfélögum upplýsingar um helstu réttindi sem ávinnast við greiðslu iðgjalda ásamt upplýsingum um skipulag og stefnu sjóðsins. Lífeyrissjóður Rangæinga telur jákvætt að nýir sjóðfélagar séu upplýstir um skipulag og stefnu sjóðsins og hvernig réttindaávinnslu er háttað. Nýir sjóðfélagar geta nálgast upplýsingarnar hér.

Fjárfestingarheimildir

Nokkrar breytingar á fjárfestingarheimildum sjóðanna voru gerðar, ber þar helst að nefna breytingar á heimildum lífeyrissjóða til erlendra fjárfestinga. Lífeyrissjóðum hefur hingað til verið skylt að tryggja að lágmarki 50% af heildareignum samtryggingardeildar í sama gjaldmiðli og skuldbindingar hans. Nú hins vegar eru gerðar breytingar á því ákvæði í skrefum, úr 50% árið 2023 í 35% árið 2036. Með þessum breytingum geta lífeyrissjóðir aukið áhættudreifingu eignasafns enn frekar.

Hafi sjóðfélagar frekari spurningar er velkomið að hafa samband á lifrang@lifrang.is eða í síma 487-5002.

 

Til baka