21.02.2024

Yfirlit sjóðfélaga

Yfirlit um iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga á tímabilinu 1. ágúst 2022 til 13. febrúar 2024 hafa verið birt á Mínum síðum sjóðsins. Á yfirlitinu má einnig sjá stöðu réttinda m.v. 13. febrúar 2024.

Við hvetjum sjóðfélaga til að fara vel yfir yfirlitin sín og ef iðgjöld vantar eða eru ekki í samræmi við launaseðla hafa samband tafaralaust við launagreiðanda eða sjóðinn í síma 487 5002 eða á netfangið lifrang@lifrang.is.

Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissparnað geta dýrmæt lífeyrisréttindi glatast.

 

Til baka