Um sjóðinn
Lífeyrissjóður Rangæinga var stofnaður árið 1971 af samtökum vinnuveitenda í Rangárvallasýslu, iðnaðar- og verkamannadeild Verkalýðsfélagsins Rangæings og Bílstjórafélagi Rangæinga.
Hlutverk sjóðsins er að tryggja sjóðfélögum, mökum þeirra og börnum lífeyri.
Lágmarksiðgjald er nú 15,5% fyrir alla launþega og sjálfstæða atvinnurekendur á aldrinum 16 til 70 ára og skiptist í 4% framlag launþega og 11,5% framlag launagreiðanda. Sjóðfélagar hafa val um að ráðstafa allt að 3,5% af 15,5% lágmarksiðgjaldi í tilgreinda séreign.
Skylduaðild er að Lífeyrissjóði Rangæinga á grundvelli svæðisbundinna samninga Verkalýðsfélags Suðurlands, Félags iðn- og tæknigreina og Samtaka atvinnulífsins en sjóðurinn er opinn öllum.
Sjóðfélagar eru um 12.000 og stærð sjóðsins rúmlega 18 milljarðar króna.
Réttindaávinnsla nýrra sjóðfélaga er aldurstengd. Árið 2006 voru gerðar breytingar á réttindaávinnslu hjá Lífeyrissjóði Rangæinga. Réttindaávinnsla allra nýrra sjóðfélaga varð þá aldurstengd og eins réttindávinnsla þeirra sjóðfélaga sem fæddir eru 1. ágúst 1981 eða síðar. Aðrir eldri sjóðfélagar færðust í jafna réttindaávinnslu eða blandaða leið, allt eftir því hvernig forsaga viðkomandi sjóðfélaga var hjá sjóðnum. Nánari umfjöllun um grunvöll lífeyrisréttinda er í 10. kafla samþykkta sjóðsins.
Starfsstöð og þjónusta við sjóðfélaga og launagreiðendur er í Verkalýðshúsinu, Suðurlandsvegi 3 á Hellu og í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Arion banki annast rekstur og eignastýringu sjóðsins.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Þröstur Sigurðsson.
Endurskoðun sjóðsins er í höndum Deloitte.
Hér má finna upplýsingar um stjórnarmenn og varastjórnarmenn en stjórn sjóðsins mótar fjárfestingarstefnu sem er aðgengileg hér. Aðrar stefnur má einnig finna á vefsíðu sjóðsins.