Útgreiðslureglur
Sjóðfélagar Lífeyrissjóðs Rangæinga geta sótt um útgreiðslur ellilífeyris vegna aldurs eða örorkulífeyris vegna orkutaps. Jafnframt geta makar og/eða börn sótt um útgreiðslur maka- og/eða barnalífeyris vegna andláts sjóðfélaga. Nánari upplýsingar um útgreiðslureglur og greiðslutilhögun má finna hér að neðan.
Mínar síður - sjóðfélagavefur
Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Einnig hefur þú aðgang að Mínum síðum í gegnum Netbanka Arion banka undir flipanum „Lífeyrissparnaður“.
Á Mínum síðum getur þú:
- Sótt um útgreiðslu ellilífeyris
- Sótt yfirlit og þannig fengið staðfestingu á að gerð hafi verið skil á öllum iðgjöldum
- Afþakkað pappírsyfirlit
- Uppfært netfang og aðrar persónuupplýsingar
- Opnað Lífeyrisgáttina og sótt heildarstöðu í öllum samtryggingarlífeyrissjóðum sem þú hefur greitt í um starfsævina
Greiðsluupplýsingar
- Lífeyrir er greiddur út mánaðarlega, eftir á, á síðasta virka degi hvers mánaðar
- Lífeyrisréttindi eru verðtryggð
- Berist umsókn um útgreiðslu ellilífeyris 20. dag mánaðar eða fyrr er ellilífeyrir greiddur síðasta virka dag sama mánaðar, annars síðasta virka dag næsta mánaðar
- Afgreiðsla maka-, barna- og örorkulífeyrisumsókna getur tekið 6 til 16 vikur
Tekjuskattur er greiddur af öllum útgreiðslum. Lífeyrissjóður Rangæinga sér um að standa skil á staðgreiðslu til ríkisins. Nánar á vefsíðu RSK.
Mælt er með að leita ráðgjafar hjá Tryggingastofnun vegna mögulegra áhrifa sem útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta haft á greiðslur frá TR. Nánar á vefsíðu TR.
Útgreiðslureglur
Ellilífeyrir
Útgreiðslur ellilífeyris hefjast almennt við 67 ára aldur og standa til æviloka. Heimilt er að flýta töku ellilífeyris til 62 ára aldurs og að sama skapi má fresta töku ellilífeyris til 80 ára aldurs. Flýting/frestun hefur áhrif til lækkunar/hækkunar á áætluðum ellilífeyrisgreiðslum skv. samþykktum sjóðsins.
Hægt er að gera samkomulag um að skipta ellilífeyrisréttindum með maka og þarf sú skipting að vera gagnkvæm og jöfn.
Sjóðfélögum bjóðast þrjár leiðir til skiptinga á greiðslum en þær eru eftirfarandi:
- Skipting ellilífeyrisgreiðslna - samkomulag um að nú þegar hafnar ellilífeyrisgreiðslur renni að hluta til maka og hluta til sjóðfélaga.
- Skipting áunninna réttinda - samkomulag um að uppsöfnuð ellilífeyrisréttindi renni að hluta til að mynda sjálfstæð ellilífeyrisréttindi fyrir maka og skerðast þá réttindi sjóðfélaga sem því nemur.
- Skipting framtíðarréttinda - samkomulag um að iðgjald sjóðfélaga renni að hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir maka og hluta til að mynda sjálfstæð réttindi fyrir sjóðfélaga.
Nánari upplýsingar og umsóknar eyðublöð um skiptingu ellilífeyrisréttinda má finna inn á vefsvæði Landssamtaka lífeyrissjóða.
Barnalífeyrir
Börn sjóðfélaga eiga rétt á barnalífeyri úr sjóðnum til 18 ára aldurs við andlát eða starfsorkumissi sjóðfélaga að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:
- Hafi sjóðfélagi greitt til sjóðsins í a.m.k. 24 mánuði á undangengnum 36 mánuðum fyrir andlát eða 6 mánuði af undanfarandi 12 mánuðum.
- Hafi sjóðfélagi notið a.m.k. 10.000 kr. mánaðarlegs elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum við andlát
- Hafi börn sjóðfélaga verið fædd eða ættleidd fyrir starfsorkumissi sjóðfélaga eða á næstu 12 mánuðum þar á eftir.
Upphæð barnalífeyris er mismunandi eftir því hvort lífeyrinn er greiddur vegna örorku eða andláts sjóðfélaga.
- Ef um örorku sjóðfélaga er að ræða er fullur barnalífeyrir með hverju barni 17.898 kr. á mánuði m.v. janúar 2023. Ef orkutap er minna en 100% skerðist barnalífeyrir í samræmi við örorkuprósentu.
- Ef um andlát sjóðfélaga er að ræða er fullur barnalífeyrir með hverju barni 24.406 kr. á mánuði m.v. janúar 2023.
Barnalífeyrir greiðist til framfæranda barns til 18 ára aldurs barnsins.
Nánari upplýsingar um barnalífeyri má finna í kaflanum „Barnalífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Makalífeyrir
Maki sjóðfélaga á rétt á fullum makalífeyri í a.m.k. 3 ár úr sjóðnum hafi sjóðfélagi greitt til sjóðsins í a.m.k. 24 mánuði á undangengnum 36 mánuðum fyrir andlát eða hafi sjóðfélagi notið elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum við andlát. Ef sjóðfélagi og maki hans voru með börn á framfæri sínu við andlát sjóðfélaga er fullur makalífeyrir greiddur þar til yngsta barnið er orðið 18 ára. Jafnframt er fullur makalífeyrir greiddur ef maki sjóðfélaga er 50% öryrki eða meira og yngri en 65 ára. Ef ekki er um að ræða börn yngri en 18 ára eða örorku maka þá greiðist hálfur makalífeyrir í allt að 2 ár að þrem árum loknum.
Upphæð makalífeyris er annaðhvort 50% af óskiptum ellilífeyrisréttindum eða 50% af örorkulífeyrisréttindum sjóðfélaga við andlát. Miðað er við það hlutfall sem veitir hærri makalífeyri.
Réttur til makalífeyris fellur niður ef makinn gengur í hjónaband á ný, stofnar til sambúðar sem jafna má til hjúskapar, eða stofnar til staðfestrar samvistar, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Nánari upplýsingar um makalífeyri má finna í kaflanum „Makalífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Örorkulífeyrir
Sjóðfélagi sem metinn er með 50% örorku eða meira á rétt á örorkulífeyri úr sjóðnum í samræmi við áunnin réttindi, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Uppfylli sjóðfélagi eftirfarandi skilyrði á hann einnig rétt á framreikningi á þeim réttindum sem ætla mætti að hann hefði áunnið sér fram til 65 ára aldurs, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
- Greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. þrjú af undanfarandi fjórum almanaksárum
- Greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum.
- Ekki átt sök á orkutapinu sjálfur t.d. vegna ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefna
- Hafi orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins
Örorkulífeyrir er greiddur þar til sjóðfélagi hefur aftur öðlast vinnufærni og er endurmat á örorku í höndum trúnaðarlæknis. Ef orkutap er varanlegt er örorkulífeyrir greiddur fram að töku ellilífeyris. Örorkulífeyrir hefur ekki áhrif til skerðingar á ellilífeyrisréttindum.
Nánari upplýsingar um örorkulífeyri má finna í kaflanum „Örorkulífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Endurgreiðsla iðgjalda til ríkisborgara utan samningsríkja við brottflutning frá Íslandi
- Erlendir ríkisborgarar geta, skv. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 129/1997, sótt um endurgreiðslu iðgjalda við brottflutning frá Íslandi að því gefnu að það sé ekki bannað skv. milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Ísland er nú þegar með milliríkjasamninga við yfir þrjátíu ríki sem hér verða nefnd samningsríki þ.e. Bandaríkin, Bretland, Færeyjar, Kanada og EES ríkin, auk Sviss þ.e. öll EFTA- og ESB ríkin.
- EFTA ríkin: Ísland, Noregur og Liechtenstein. Einnig Sviss vegna aðildar sinnar að Vadus samningi EFTA ríkjanna.
- ESB ríkin: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur (gríski hlutinn), Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland. Ungverjaland, Þýskaland.
- EFTA ríkin: Ísland, Noregur og Liechtenstein. Einnig Sviss vegna aðildar sinnar að Vadus samningi EFTA ríkjanna.
- Sjóðfélagi sem er með ríkisborgararétt í samningsríki: ekki er heimilt að endurgreiða honum lífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Ef um tvöfalt ríkisfang er að ræða er ekki heimild til endurgreiðslu ef annað er innan samningsríkis. Ríkisföngin þyrftu bæði að vera utan samningsríkja til að endurgreiðsla sé heimil. Sótt er um í gegnum systurstofnun Tryggingastofnunar í búsetulandi þegar að útgreiðslu kemur.
- Sjóðfélagi sem er ekki með ríkisborgararétt í samningsríki og er ekki að flytja til samningsríkis: heimilt er að endurgreiða honum lífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Þá er framlag sjóðfélaga og launagreiðanda endurgreitt með verðbótum, en án vaxta. Greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu. Ef sjóðfélagi hefur öðlast svokallaðan rétt á framreikningi örorku (venjulega eftir 3 ár) getur endurgreiðsluhlutfallið lækkað.
Reimbursement of nationals of non-contracting states when moving away from Iceland
- Pursuant to Article 19 (4) of Act No. 129/1997 foreign nationals can apply for reimbursement of premiums when they move away from Iceland provided that this is not prohibited under international agreements to which Iceland is party. Iceland currently has international agreements with more than 30 countries which here will be called contracting states. The contracting states are the United States, the United Kingdom, the Faroe Islands, Canada and members of the EEA, plus Switzerland, i.e. all EFTA and EU states.
- The EFTA member states: Iceland, Norway and Liechtenstein. Switzerland is also included by virtue of its being a party to the Vaduz convention of the EFTA states.
- The EU member states: Austria, Belgium, Bulgaria, Croatia, Cyprus (Greek Cypriot administered area), the Czech Republic, Denmark, Estonia, Finland, France, Germany, Greece, Hungary, Ireland, Italy, Latvia, Lithuania, Luxembourg, Malta, the Netherlands, Portugal, Poland, Romania, Slovakia, Slovenia, Spain, and Sweden.
- The EFTA member states: Iceland, Norway and Liechtenstein. Switzerland is also included by virtue of its being a party to the Vaduz convention of the EFTA states.
- A fund member who is a national of a contracting state: it is not permitted to reimburse the fund member their pension savings when moving away from Iceland. In the case of dual nationality, it is not permitted to reimburse the fund member if one nationality is a contracting state and the other is not. The nationalities both need to be non-contracting states for reimbursement to be permitted. Applications are made through the sister institute of the Icelandic Social Insurance Administration in the country of residence when it is time to make payment.
- A fund member who is not a national of a contracting state and who is not moving to a contracting state: it is possible to reimburse the fund member their pension savings when moving away from Iceland. In such case, the contribution of fund members and employers will be reimbursed with inflation compensation, but without interest. Income tax is payable on payouts. If the party in question has acquired the right to extrapolate disability rights (usually after 3 years) the reimbursed amount might be lower.
Nánari upplýsingar á vefsíðu TR - For more information visit TR's website.